Enski boltinn

Kuszczak framlengir við United

NordicPhotos/GettyImages

Pólski markvörðurinn Tomasz Kuszczak hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Manchester United til ársins 2012. Um er að ræða tveggja ára framlengingu.

Hinn 26 ára gamli landsliðsmaður gekk í raðir United sem lánsmaður frá West Brom árið 2006 en gekk frá félagaskiptum í fyrrasumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×