Zola: West Ham sterkt félag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2008 11:15 Gianfranco Zola, knattspyrnustjóri West Ham. Nordic Photos / Getty Images
Gianfranco Zola, knattspyrnustjóri Íslendingaliðsins West Ham, segir að félagið sé nægilega sterkt til að standa af sér Carlos Tevez-málið svokallaða. Þetta sagði hann í samtali við enska fjölmiðla fyrir leik liðsins gegn Liverpool sem fer fram klukkan 20.00 í kvöld. West Ham hélt sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni vorið 2007, meðal annars á kostnað Sheffield United. West Ham var á sínum tíma sektað um háa fjárhæð þar sem að samningamál Carlos Tevez samræmdust ekki reglum ensku úrvalsdeildarinnar. West Ham hélt þó sæti sínu í úrvalsdeildinni og það sætti Sheffield United sig ekki við og sótti málið fyrir gerðardómi. Úrskurður hans var að Tevez hefði ekki átt að spila síðustu leiki tímabilsins með West Ham. Eftir því sem kemur fram á fréttavef Sky Sports mun United fara fram á skaðabætur upp á 50 milljónir punda þegar liðin fara á ný fyrir dóm í mars næstkomandi þar sem sektarviðurlög verða ákveðin. „Eftir því sem ég best veit er félagið nægilega sterkt til að takast á við þetta mál. Hvorki ég né leikmenn hafa áhyggjur af þessu." „Ég hef verið fullvissaður um að rekstur félagsins sé í lagi þannig að ég hef einbeitt mér að því sem mestu máli skiptir, að safna stigum." „Auðvitað hef ég lesið mikið í fjölmiðum um öll þessi mál en ég treysti félaginu. Þeir segja mér að félagið sé í góðum málum og að það komist í gegnum þessar raunir. Það er mín skylda að liðinu gangi sem best á vellinum og mun ég einbeita mér að því."
Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Fleiri fréttir Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Sjá meira