Verð að vera stór og sterk Henry Birgir Gunnarsson í Peking skrifar 8. ágúst 2008 12:30 Ragna Ingólfsdóttir kom fyrst íslensku keppendanna til Peking. Mynd/Vilhelm „
Ég er frekar róleg enda búin að undirbúa mig vel bæði líkamlega og andlega fyrir þessa stund," sagði badmintonstúlkan Ragna Ingólfsdóttir við Vísi tæpum sólarhring áður en hún mætir japönsku stúlkunni Eriko Hirose. Ragna er fyrst íslenski keppandinn sem stígur á stokk á ÓL í Peking en leikur hennar við Hirose hefst klukkan 1.20 í nótt að íslenskum tíma. Ragna er með slitið krossband og hefur bitið á jaxlinn og spilað þannig í rúmt ár svo hún kæmist til Peking. Hvernig er staðan á hnénu sólarhringi fyrir stóru stundina? „Ég hef ákveðið að svara því þannig að hnéð sé frábært en það hefur eðlilega verið að "bögga" mig síðustu mánuði," sagði Ragna en blaðamanni fannst hún stinga við er hún labbaði. „Ég er ekki hölt en hnéð er laust í sér. Ég hef getað spilað svona í rúmt ár og þetta er bara enn eitt mótið sem hnéð er í þessu ástandi. Mér finnst hnéð vera fínt og mestu skiptir að hausinn sé í lagi enda er ég vön að keppa í þessu ástandi." Andstæðingur Rögnu er besti badmintonspilari Japans og er um 20 sætum fyrir ofan Rögnu á styrkleikalistanum. Það er því ljóst að það verður við ramman reip að draga. „Ég má ekki einblína of mikið á hvernig hún spilar heldur meira hvernig ég ætla að spila. Ég má ekki vera lítil og hrædd heldur verð ég að vera stór og sterk," sagði Ragna sem er reyndar 17 sentimetrum hærri en Hirose. Ragna er 180 sentimetrar en Hirose 163. „Allar japönsku stelpurnar eru með svipaðan stíl. Ég hef unnið tvær japanskar en þær voru reyndar ekki eins góðar og þessi. Ég veit því hvernig þær spila. Þessi stelpa er að spila á sterkari mótum en ég og kemst þar í átta liða og undanúrslit þannig að hún er rosalega sterk," sagði Ragna sem er því eðlilega ekki sigurstranglegri aðilinn í viðureigninni. „Ég vona að það sé meiri pressa á henni. Það er eflaust búist við miklu af henni og vonandi get ég nýtt mér að það sé pressa á henni," sagði Ragna.
Mest lesið Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ Handbolti „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Fótbolti Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Handbolti Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Fótbolti „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Körfubolti „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Íslenski boltinn „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ Íslenski boltinn Dómarnir sem gerðu Bæjara brjálaða: „Maður skilur þá mjög vel“ Fótbolti Slagsmál á æfingasvæði Real Madrid Fótbolti Titillinn undir: „Bæði lið hafa spilað feykilega vel“ Handbolti Fleiri fréttir Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Galin hegðun sjálfboðaliða Fordómar í garð Hafdísar á borð HSÍ: „Litið grafalvarlegum augum“ „Þetta er flókin staða“ Yfir þrjátíu milljónir vilja Mbappé í burtu Drifkrafturinn hjá McIlroy meiri eftir tímamótasigur Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Titillinn undir: „Bæði lið hafa spilað feykilega vel“ Rússinn sem hrifsaði til sín sæti Donnarumma Tvísýnt með þátttöku Kristals í úrslitaleiknum: „Búinn að vera stórkostlegur“ Liverpool hættir við verðhækkanir Sjáðu Andreu skora tvisvar beint úr horni og systurnar svara Dómarnir sem gerðu Bæjara brjálaða: „Maður skilur þá mjög vel“ Kunni betur á moppuna og fagnaði sigri „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Hetjan Einar sleginn í punginn: „Svona á ekki heima á handboltavelli“ Sjáðu Dembélé skjóta PSG áfram í úrslitaleikinn Dagskráin í dag: Undanúrslitin ráðast í Evrópu og Bestu mörkin gera upp umferðina Slagsmál á æfingasvæði Real Madrid „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Uppgjörið: Víkingur-Breiðablik 2-4 | Rigndi mörkum í Víkinni City varð Englandsmeistari heima í sófanum Gylfi: „Dómararnir í þessum leik virðast ekki hafa almenna þekkingu“ „Það er karakter í þessu liði“ „Fá svo einhvern trúð hérna klappandi í andlitið á mér, það hjálpaði ekki“ FH - Grindavík/Njarðvík 2-1 | Fyrsti sigur FH kom gegn nýliðunum Viktor Gísli áfram í Final Four en Orri Freyr úr leik „Hefði átt að stela þessu í lokin“ Uppgjörið: Grindavík - Valur 109-82 | Grindvíkingar í úrslit eftir sannfærandi sigur Sjá meira