Fyrsti sigur Tottenham - Robinho með þrennu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. október 2008 16:59 Harry Redknapp var vel tekið á White Hart Lane í dag. Nordic Photos / Getty Images
Tottenham vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu er liðið lagði Bolton, 2-0. Þetta var einnig fyrsti leikur liðsins eftir að Juande Ramos var rekinn sem knattspyrnustjóri Tottenham og Harry Redknapp ráðinn í hans stað. Þá vann Manchester City öruggan 3-0 sigur á Stoke auk þess sem Aston Villa vann sigur á Wigan á útivelli með fjórum mörkum gegn engu. Roman Pavlyuchenko sá til þess að Redknapp fékk óskabyrjun með Tottenham en hann skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir fyrirgjöf David Bentley. Þetta var einnig fyrsta mark Pavlyuchenko í deildinni. Gavin McCann, leikmaður Bolton, fékk svo að líta sitt annað gula spjald snemma í síðari hálfleik fyrir að tæklingu á Tom Huddlestone. Darren Bent kom inn á sem varamaður skömmu síðar og fiskaði vítaspyrnu undir lok leiksins er Jussi Jaaskaleinen er dæmdur brotlegur í viðskiptum þeirra. Bent skoraði af öryggi úr spyrnunni. Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn fyrir Bolton en Heiðar Helguson sat allan tímann á varamannabekknum. Robinho skoraði öll þjrú mörk Manchester City gegn Stoke, þar af tvö í síðari hálfleik. Hjá Aston Villa kom Gareth Barry sínu liði yfir með marki úr vítaspyrnu á 22. mínútu en þeir Gabriel Agbonlahor, John Carew og Steve Sidwell skoruðu hin mörk Villa í síðari hálfleik. Tottenham er þó enn á botni deildarinnar en nú með fimm stig. Aston Villa er hins vegar komið upp í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig eftir sigurinn í dag á meðan að City er í sjöunda sæti með þrettán stig.
Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti England - Argentína | Messi mætir ensku ljónunum í fyrsta sinn Fótbolti „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira