West Ham getur ekki áfrýjað til CAS Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. september 2008 13:22 Carlos Tevez í leik með West Ham. Nordic Photos / Getty Images
Íslendingafélagið West Ham hefur orðið fyrir miklu áfalli þar sem í ljós er komið að félagið getur ekki áfrýjað niðurstöðu gerðardóms fyrr í vikunni til Áfrýjunardómstóls íþróttamála (CAS) í Lousanne í Frakklandi. Gerðardómurinn úrskurðaði Sheffield United í hag sem sótti mál sitt gegn West Ham fyrir að nota ólöglegan leikmann á leiktíðinni 2006-7. Sá var Carlos Tevez en West Ham bjargaði sér frá falli um vorið, meðal annarra á kostnað Sheffield United. Matthieu Reeb, einn forráðamanna CAS, sagði í samtali við fréttastofu BBC, að dómstóllinn gæti ekki tekið málið að sér. „Við myndum þurfa samþykki Sheffield United auk þess sem að reglur enska knattspyrnusambandsins þyrftu að heimila slíka áfrýjun." Afar ólíklegt verður að teljast að Sheffield United samþykki þessa aðgerð auk þess sem að reglur sambandsins heimila ekki áfrýjun. Sheffield United hefur farið fram á meira en 5,2 milljarða í skaðabætur frá West Ham en viðurlögin verða ákveðin í sérstökum gerðardómi snemma á næsta ári. Þar að auki var sagt frá því að tíu leikmenn Sheffield United gætu lögsótt West Ham af sömu ástæðum og félagið gerði það. Leikmenn urðu af bónusgreiðslu er liðið féll auk þess sem þeir þurftu margir að sætta sig við launalækkun á næsta keppnistímabili.
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira