Ronaldo: Ég verð áfram hjá United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. ágúst 2008 22:20 Cristiano Ronaldo verður áfram í herbúðum United. Nordic Photos / Getty Images
Cristiano Ronaldo hefur staðfest að hann verði áfram í herbúðum Manchester United í að minnsta kosti eitt ár til viðbótar. Þetta hefur portúgalska dagblaðið Publico eftir honum en Ronaldo hefur ítrekað verið orðaður við Real Madrid eftir að hann lýsti yfir áhuga sínum að fara til Madrídar. „Sir Alex Ferguson heyrði mín rök og ég heyrði hans. Og í sannleika sagt var besta lausnin fyrir báða aðila sú að ég verði áfram hjá United.“ „Ég get því staðfest að ég mun spila með Manchester United á næsta keppnistímabili.“ Ferguson sagði í gær að máli Ronaldo væri lokið og að hann myndi ekki fara frá félaginu. Ronaldo vildi undirstrika að hann væri sáttur við að vera áfram. „Áður en orðrómar fara af stað þess efnis að ég sé að spila gegn mínum vilja vil ég taka það skýrt fram að sá sem heldur því fram er að ljúga. Ég mun leggja hjarta mitt og sál í Manchester-liðið. Ég mun berjast stoltur fyrir hönd liðsins eins og ég hef alltaf gert.“ Hann sagði einnig að hann bæri sína sök á því að samskipti Manchester United og Real Madrid eru ekki góð. „Ég bar ábyrgð á öllum þessum deilum. Það var ég sem sagði að ég vildi fara til Real Madrid og það varð til þess að samband þessara tveggja félaga varð slæmt, þó það hafi ekki verið ætlun mín.“ Hann útilokaði þó ekki að ganga til liðs við Real Madrid síðar á ferlinum. „Ég vissi að Real Madrid hafði mikinn áhuga á að fá mig og að þeir gerðu United mjög ríflegt tilboð. Ég vildi um stundarsakir að United myndi taka því. Ef ég myndi halda öðru fram væri ég að blekkja aðra jafnt sem eigin samvisku.“
Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Íslenski boltinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Sjá meira