Enski boltinn

Saha bauðst til að vinna kauplaust

NordicPhotos/GettyImages

Franski framherjinn Louis Saha var svo ákafur að ganga í raðir Everton að hann bauðsti til að gefa vinnu sína þangað til hann næði sér af meiðslum til að greiða fyrir félagaskiptunum frá Manchester United.

David Moyes knattspyrnustjóri Everton afþakkaði þetta óvenjulega tilboð Frakkans, en miklar vonir eru bundnar við hann á Goodison Park þó hann hafi verið þjakaður af meiðslum meira og minna allan sinn feril hjá Manchester United.

"Ég bauð þeim að gera þetta svona af því ég vil geta horft framan í sjálfan mig í speglinum. Svona er mitt hugarfar. Ég hefði geta verið eigingjarn, en ég vildi stinga upp á þessu af því ég hef átt það til að meiðast," sagði Saha.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×