Antonio Valencia er leikmaður 37. umferðar 6. maí 2008 13:27 NordcPhotos/GettyImages
Vængmaðurinn Antonio Valencia sló í gegn um helgina þegar hann skoraði bæði mörk Wigan í óvæntum 2-0 útisigri liðsins á Aston Villa. Sigurinn þýddi að sæti Wigan í úrvalsdeildinni er tryggt, þrátt fyrir að það hefði aðeins fengið 9 stig í fyrstu 16 umferðunum. Smelltu hér til að sjá myndband með tilþrifum leikmanns umferðarinnar, Antonio Valencia. Smelltu hér til að sjá myndbrot af helstu tilþrifum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.. Það var Paul Jewell sem fékk hinn 22 ára gamla Ekvadora til Wigan á sínum tíma, en hann var áður hjá spænska liðinu Villarreal. Hann var fyrst lánaður til Wigan í ágúst árið 2006, en var svo keyptur endanlega í janúar á þessu ári. Hann hafði aðeins skorað tvö mörk fyrir leikinn mikilvæga um helgina, en tvö mörk hans í síðari hálfleik settu strik í reikninginn fyrir Evrópumetnað Villa í vor. Steve Bruce knattspyrnustjóri Wigan hefur miklar áhyggjur af því að Valencia fari frá félaginu í sumar, en hann hefur þegar lýst því yfir að bæði Liverpool og Manchester United hafi verið að fylgjast með piltinum. Hann varar hann þó við því að stökkva á fyrsta tilboð ef stóru klúbbarnir spyrjast fyrir um hann. "Ég vil ekki að menn eins og Valencia fari frá okkur því þeir eru enn ungir og eru að finna sig sem leikmenn. Hann hefur verið að spila vel og vekur því áhuga stærri liða og þá er erfitt að halda honum, en ég minni þessa stráka á að það er mikilvægt að fá að spila reglulega ef þeir ætla að bæta sig og það er óvíst að þeir fái það tækifæri hjá stóru liðunum," sagði Bruce. Nafn: Luis Antonio Valencia MosqueraFæddur: 4. ágúst í Nueva Loja, EkvadorStaða: VængmaðurNúmer: 16Félög: Nacional, Villarreal, Recreativo (lán), Wigan
Enski boltinn Mest lesið Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Fótbolti Haukar halda sigurgöngunni áfram Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Handbolti Útskýrir hvers vegna afsökunarbeiðnin fór á samfélagsmiðla Formúla 1 Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Sport Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Handbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira