Enski boltinn

David Dunn úr leik hjá Blackburn

NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn David Dunn hjá Blackburn getur ekki spilað með liði sínu næstu fjóra mánuðina eða svo vegna meiðsla á hásin. Hinn 28 ára gamli Dunn þarf að fara í aðgerð og útilokað hefur verið að hann komi meira við sögu hjá liðinu á árinu.

"Þetta er gríðarlegt áfall fyrir okkur og hann sjálfan líka. Hann var búinn að vera yfir sig ánægður síðan ég gerði hann að varafyrirliða," sagði Paul Ince knattspyrnustjóri.

Blackburn hafði þegar misst miðjumann sinn Vince Grella í meiðsli, en sá er ástrali og kom til liðsins í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×