Rætt um Afganistan og Kosovo á fundi NATO 6. mars 2008 14:30 MYND/Pjetur
Stækkun Atlantshafsbandalagsins til austurs, aðgerðir alþjóðasamfélagsins í Afganistan og staðan í Kosovo var meðal þess sem utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins ræddu á fundi í Brussel í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd sem haldinn var í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins sem fram fer í Búkarest í næsta mánuði.Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að utanríkisráðherra hafi lýst jákvæðri afstöðu íslenskra stjórnvalda til þess að veita Króatíu, Albaníu og Makedóníu aðild að bandalaginu, náist um það samstaða meðal aðildarríkja NATO. Ráðherra ítrekaði mikilvægi náinna samskipta við Georgíu og Úkraínu og lýsti yfir stuðningi við beiðni Svartfjallalands og Bosníu-Hersegovínu um nánari tengsl við NATO. Ráðherra hvatti til þess að bæði NATO og ESB haldi góðum tengslum við Serbíu.Vill betra samráð alþjóðastofnana í AfganistanÍ umræðum um Afganistan ítrekaði utanríkisráðherra þau órofatengsl sem eru á milli friðargæslu, góðrar stjórnsýslu og efnahagsuppbyggingar og lagði þunga áherslu á mikilvægi heimamanna í öllu uppbyggingarstarfi. Ráðherra kallaði eftir bættu samráði alþjóðastofnana í Afganistan undir forystu Sameinuðu þjóðanna.Greindi ráðherra frá því að í utanríkisráðuneytinu er nú unnið að gerð þriggja ára áætlunar um áframhaldandi stuðning við friðar- og uppbyggingarstarf í Afganistan þar sem megináherslan er á verkefni á sviði mannréttinda, þróunar og friðsamlegrar lausnar deilumála.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Deilt um ábyrgð leigjenda á pinnahælaförum í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára Tryggja rekstur Hjálparsímans til tveggja ára Bréf ríkisendurskoðanda á borði forsætisnefndar Beygjur og hringtorg mesta áskorunin fyrir vindmyllulestina Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Ársæll fékk aftur nei við vitnaleiðslubeiðni Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu Spáð í spilin fyrir komandi kosningar og rætt við vindmylluflutningamenn Astró og Bix í góðu lagi en Norðquist hafnað Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Sjá meira