Liverpool vann United Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. september 2008 13:47 Nemanja Vidic horfir á eftir boltanum í markið en Albert Riera fagnar er Liverpool jafnaði leikinn þökk sé sjálfsmarki Wes Brown. Nordic Photos / AFP
Fyrsta risaleik tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið. Liverpool vann 2-1 sigur á Manchester United á Anfield í fyrsta leik Dimitar Berbatov með United. United fékk þó óskabyrjun og Berbatov var ekki nema tvær mínútur að leggja upp sitt fyrsta mark fyrir félagið. Hann gaf hnitmiðaða sendingu inn í miðjan vítateig frá endalínunni þar sem Carlos Tevez var einn og óvaldaður og skilaði knettinum örugglega í netið. Edwin van der Sar gerði sig svo sekan um klaufaleg mistök á 26. mínútu. Xabi Alonso reyndi fyrirgjöf sem fór af Patrice Evra og þaðan inn í teiginn. Van der Sar var of seinn í úthlaupið og gerði ekki betur en svo að slá boltann í Wes Brown sem gat ekki annað en að fylgjast með boltanum rúlla í netið. Javier Mascherano var svo maðurinn á bak við sigurmark leiksins. Tveir leikmenn United reyndu að ná boltanum af honum en Dirk Kuyt varð fyrri til, renndi boltanum út í teiginn þar sem varamaðurinn Ryan Babel skoraði af öryggi. Liverpool fékk svo annað gott færi undir lokin þegar að Dirk Kuyt var kominn einn gegn Van der Sar en lét verja frá sér. Nemanja Vidic, leikmaður United, fékk að líta rauða spjaldið undir lokin fyrir tvö brot með skömmu millibili. Hann missir því af leik United gegn Chelsea. Þetta var fyrsti deildarsigur Rafael Benitez á Manchester United sem knattspyrnustjóri Liverpool. United byrjaði miklu mun betur í leiknum en það dró mikið af leikmönnum liðsins eftir því sem á leið leikinn, sérstaklega eftir að Babel skoraði. Þá tók Liverpool öll völd í leiknum.
Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira