Grétar Rafn: Ekki vanur botnbaráttu Elvar Geir Magnússon skrifar 25. apríl 2008 10:15 Grétar með Matt Taylor og Jlloyd Samuel.
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson hefur fengið að kynnast botnbaráttunni síðan hann gekk til liðs við Bolton. Grétar var áður að berjast á hinum endanum með hollenska liðinu AZ Alkmaar. „Það er erfitt að vera í þessari stöðu, þetta er eitthvað sem ég þekki ekki. Samt er þetta enn fótbolti og þetta er ekkert ólíkt því að vera að stefna á bikarinn," sagði Grétar í viðtali við Sporting Life. „Við höfum þrjá leiki til stefnu og þurfum að gera betur en hin liðin. Það er alveg eins og þegar þú ert að berjast um titilinn, maður þarf að gera betur en liðin í kring og það ætlum við okkur að gera," sagði Grétar. Bolton reynir að bjarga sér frá falli líkt og Fulham, Reading og Birmingham en Derby er þegar fallið. Bolton hefur unnið síðustu tvo leiki og því náð að koma sér úr fallsæti í fyrsta sinn síðan í byrjun mars. „Við vorum í fallsæti og þekkjum því þá stöðu. Við vitum hvernig hinum liðunum líður, þetta er ekki þægileg staða. Að vinna tvo leiki í röð er ekki algengt hjá okkur svo við verðum að vera bjartsýnir fyrir næstu leiki. Við verðum að halda áfram að berjast. Við þurfum ekki að horfa á önnur lið heldur bara spila okkar leik og fá réttu úrslitin." Bolton heimsækir Tottenham á laugardag áður en liðið leikur gegn Sunderland og Chelsea í leikjum sem gætu ráðið úrslitum. „Það er mikið í húfi og þú vilt ekki gera nein mistök. En þetta er fótbolti. Ef þú hugsar of mikið um hvað er að gerast kringum félagið eða hvað mun gerast þá truflar það þig og þú spilar ekki eins vel og þú getur. Ég hugsa ekki út í hvað framtíðin ber í skauti sér," sagði Grétar Rafn Steinsson.
Enski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira