Enski boltinn

Tjáir sig eftir EM

Elvar Geir Magnússon skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.

Cristiano Ronaldo ætlar ekkert að tjá sig um framtíð sína fyrr en eftir EM. Hann hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid sem hyggst gera Manchester United risatilboð.

Ronaldo segist alfarið vera með hugann við leik Portúgals og Þýskalands á fimmtudag.

Luis Felipe Scolari, þjálfari Ronaldo hjá Portúgal, mun taka við Chelsea eftir Evrópumótið. „Við erum mjög góðir vinir. Ég held að hann geri góða hluti hjá Chelsea. Hann er frábær þjálfari og ég mun alltaf líta á hann sem vin minn," sagði Ronaldo um Scolari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×