Ólöf Arnalds með baráttusöng fyrir Náttúru-tónleikana Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 26. júní 2008 16:30 Söngvaskáldið Ólöf Arnalds.
Hin frábæra tónlistarkona Ólöf Arnalds mun sjá um að halda áhorfendum við efnið milli Sigur Rósar og Bjarkar á Náttúru-stórtónleikunum í Laugardal á laugardag. Sigur Rós eiga að hefja leik klukkan 19 og Björk mun síðan stíga á svið upp úr klukkan 21. Eins og gefur að skilja er mikið hafurtask sem fylgir þessum tveimur stærstu nöfnum íslensks tónlistarlífs og því mætast nokkrar andstæður í þeim og Ólöfu sem spilar sína lágstemmdu tóna með aðeins einum aðstoðarmanni. Verður vonandi eins og þægilegir stofutónleikar Ólöf segir það heiður að fá að troða upp á tónleikunum og hlakkar mikið til. „Mitt markmið er að þjóna þessari uppákomu þannig að biðin milli hljómsveitanna verði ekki dauður punktur," segir Ólöf sem hræðist áskorunina ekki neitt. „Ég veit reyndar ekkert hvað ég er að fara út í, ég hef aldrei spilað fyrir svona fjölda áður. Svo það kemur bara í ljós hvort þetta verði háskaleg upplifun eða eins og á hverjum öðrum stofutónleikum sem ég hef spilað á." Fólk á að sameinast í hópsöng Baráttan fyrir verndun náttúru Íslands er að sjálfsögðu Ólöfu mikið hjartansmál . Ætlar hún ekki að láta sitt eftir liggja því Ólöf hefur samið sérstakan baráttusöng sem hún hyggst kyrja á tónleikunum og hvetur hún alla til að syngja með. „Hópsöngur er svo sterkt sameiningarafl, því fólk þarf ekki að vera með sömu skoðanir niður í smáatriði til að syngja saman." Viðlagið er einfalt og því ættu allir hæglega að geta sungið með Ólöfu. Viðlagið er eftirfarandi: „Af stað, af stað á nýjan stað." Hér með eru allir hvattir til að syngja hástöfum með. Hægt er nálgast lagið með því að smella hér.
Mest lesið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Kátir tískukarlar hjá Kölska Tíska og hönnun Maður þurfti ekki að vera skyggn Gagnrýni Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Lífið Selur slapp úr hvalskjafti Lífið „Það spurði þig enginn“ Lífið Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Lífið Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina Lífið Gáfu dótturinni þrjú nöfn Lífið Fleiri fréttir Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Ráðgjafi Bandaríkjaforseta í Hörpu Fyrsta starfið að fara út með hund Madonnu Tito Jackson er látinn „Hefur þú heyrt söguna af því þegar þú komst í heiminn?“ Ratleikur sem endaði með óvæntu brúðkaupi Ljósmyndaþáttur Ragnars Axelssonar: „Fjöllin hafa vakað lengur en í þúsund ár“ Sex heilnæm heilsuráð inn í haustið Krakkatía vikunnar: Litir, ljón og sjón Sjá meira