Kemst Tottenham af botninum? 15. september 2008 13:45 Juande Ramos hefur enn ekki náð í sigur með Tottenham á leiktíðinni NordicPhotos/GettyImages
Einn leikur er á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en það er viðureign Tottenham og Aston Villa sem hefst klukkan 19 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Tottenham þarf svo sannarlega á sigri að halda í kvöld enda eru lærisveinar Juande Ramos í botnsæti deildarinnar með aðeins eitt stig eftir þrjá leiki. Þetta er annað árið í röð sem liðið byrjar hörmulega í deildinni. Enn og aftur tippuðu sérfræðingar á að Tottenham myndi veita toppliðunum fjórum harða keppni, en enn og aftur hefur annað komið í ljós. Tapi Tottenham fyrir Villa á heimavelli sínum í kvöld, yrði það versta byrjun félagsins í deildinni frá stofnun úrvalsdeildarinnar. Aston Villa hefur reyndar ekki byrjað allt of glæsilega heldur þrátt fyrir góðan 4-2 sigur á Manchester City á opnunardegi leiktíðarinnar. Villa hefur reyndar aðeins tapað einum af síðustu sjö leikjum sínum í öllum keppnum, en aðeins inn sigur í síðustu sex deildarleikjum þykir ekki viðunandi hjá lærisveinum Martin O´Neill. Mörgum er enn í fersku minni leikur þessara liða í fyrra, en þá náði Villa 4-1 forystu gegn Tottenham en þurfti að sætta sig við eitt stig. Villa hefur ekki náð að sigra í síðustu átta leikjum sínum á White Hart Lane. Til greina kemur að tveir leikmenn fái jafnvel sæti í byrjunarliði Tottenham í fyrsta skipti í kvöld, en það eru Rússinn Roman Pavlyuchenko og Króatinn Vedran Corluka, sem keyptir voru rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans. Möguleg byrjunarlið í kvöld: Tottenham: Gomes, Corluka, Woodgate, King, Bale, Bentley, Zokora, Jenas, Modric, Dos Santos, Pavlyuchenko. Aston Villa: Friedel, L Young, Laursen, Davies, Shorey, Reo-Coker, Petrov, Barry, A Young, Carew, Agbonlahor.
Enski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Sjá meira