Stofnar samtök um bíllausan lífsstíl Breki Logason skrifar 19. ágúst 2008 16:36 Sigrún Helga Lund
Sigrún Helga Lund er stærðfræðingur og tveggja barna móðir í Vesturbæ Reykjavíkur. Annað kvöld stendur hún fyrir stofnun nýrra samtaka um bíllausan lífsstíl. Sigrún stofnaði samfélag tengdu málefninu á Facebook fyrir skömmu og hafa rúmlega þúsund manns nú þegar skráð sig. Hún segir verulega halla á þá sem kjósa sér annan samgöngumáta en bíla. „Strætónotendur hafa til dæmis engan málsvara," segir Sigrún Helga en fólk á öllum aldri hefur nú þegar skráð sig í samtökin. „Það er algjör misskilningur að þetta séu allt einhverjir bílahatarar því þarna eru líka áhugamenn um bíla. Þetta er bara fólk sem notar aðra samgöngumáta en bíla og hugsar aðeins út fyrir kassann." Sigrún segir að samtökin séu með stefnuyfirlýsingu sem unnið er útfrá en einnig er verið að koma heimasíðu á laggirnar. Samtökin munu beita sér fyrir meiri metnaði yfirvalda í að leggja göngu- og hjólreiðastíga svo eitthvað sé nefnt. Sigrún Helga á sjálf ekki bíl en þau hjónin fengu bíl gefins frá föður hennar þegar þau eignuðust seinni dóttur sína. „Síðan fannst okkur hann bara ekki kostnaðarins virði og seldum hann. Við búum stutt frá vinnustöðum okkar og getum því gengið eða hjólað í vinnuna. Síðan erum við ófeimin við að taka leigubíla og Strætó," segir Sigrún Helga og bendir á að bílleysið gangi mjög vel. „Strætóinn er fínn fyrir okkur en hann gekk á kortersfresti héðan úr Vesturbænum síðasta vetur og við tökum hann í Bónus, það er ekkert vesen." Grunnur verður lagður að stofnun samtakanna annað kvöld á efri hæð Sólon klukkan hálf níu. Sigrún segir alla sem hafa áhuga velkomna en samtökin eru langt frá því að vera pólitísk. „Við ætlum að reyna að halda þessu utan stjórnmálaflokka eins mikið og við getum. Þarna er fólk úr öllum flokkum. Við nennum ekki að festast í því þrasi." -------- Hér að neðan má sjá stefnuyfirlýsingu samtakanna Samtök um bíllausan lífsstíl er hópur fólks sem hefur að sameiginlegu áhugamáli að vinna að því að gera bíllausan lífsstíl á höfuðborgarsvæðinu að vænlegri kosti en nú er Tilgangurinn er margþættur, allt frá því að hafa jákvæð áhrif á nærumhverfið og draga úr útblástursmengun og yfir það að skapa líflegra og mannvænna borgarumhverfi. Í hópnum er fólk sem bæði lifir bíllausum lífsstíl og þeir sem gjarnan vildu gera það, ef aðstæður til þess væru betri. Hópurinn er þverpólitískur, og leggur því meiri áherslu á að berjast fyrir réttindum þeirra er kjósa sér bíllausan lífsstíl fremur en sértækum og hugsanlega umdeilanlegum lausnum. Hópurinn mun því berjast fyrir eftirfarandi atriðum: • að borin sé virðing fyrir almannarými á borð við gangstéttir og torg, og að sektir fyrir ólöglega lögðum faratækjum séu sambærilegar á við það sem gerist í nágrannaborgum og að sektað sé allan tíma sólarhringsins, • að gætt þess verði að stofnæðar trufli sem minnst nærliggjandi byggð, • að draga úr niðurgreiðslum til handa bílandi á formi gjaldfrjálsra bílastæða við stofnanir, verslanir og fyrirtæki, óbeinnar gjaldtöku af umferðarmannvirkjum og hverju því sem dregur úr samkeppnishæfni annarra valkosta við einkabílinn, • að hvetja til þess að lagðir séu göngustígar og hjólabrautir með sambærilegum metnaði og götur fyrir bíla, • að umferðaræðar verði skipulagðar sem breiðstræti ekki síður en hraðbrautir þar sem við á, • að almenningssamgöngur fái sérakreinar á stofnæðum þar sem hætta er á biðraðamyndun og töfum, • að lögð verði enn meiri áhersla á skjólmyndun með trjágróðri en nú er. Hópurinn mun einnig kynna kosti þess að lifa bíllausum lífsstíl fyrir þá sem ekki gera það í dag, hvaða áhrif það hefur á líf þess og nærumhverfi og hvetja fólk til að breyta um lífsstíl eftir fremsta megni.
Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Pattra með pæju-padelmót Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira