Fyrsti stórleikur tímabilsins 13. september 2008 09:00 Steven Gerrard og Anderson háðu harða baráttu á Anfield í fyrra en Gerrard verður líklega fjarri góðu gamni í dag. nordic photos/getty
Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en flestra augu munu líklega beinast að hádegisleik Liverpool og Englandsmeistara Manchester United. Liverpool getur unnið sinn ellefta heimaleik í röð og komist eitt á topp deildarinnar, alltént í nokkrar klukkustundir, þegar erkifjendurnir í United koma í heimsókn. Liverpool tapaði aðeins einum heimaleik í deildinni á síðustu leiktíð, en það var einmitt á móti United. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri United, virðist reyndar hafa eitthvert tak á Rafa Benitez, knattspyrnustjóra Liverpool, því í deildinni hefur Skotinn stýrt United til sigurs í sjö leikjum af átta gegn Liverpool undir stjórn Spánverjans og gert eitt jafntefli. Eina skiptið sem Benitez hefur skotið Ferguson ref fyrir rass var í 5. umferð FA-bikarsins árið 2006. Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, viðurkennir að United sé búið að spila betur en Liverpool í undanförnum grannaslögum. „Ég trúi ekki á heppni og óheppni í fótbolta. Þú færð bara það sem þú átt skilið og United hefur verið betra en við í síðustu viðureignum," segir Carragher. Liverpool verður að öllum líkindum án bæði Stevens Gerrard og Fernando Torres og pressan fer nú að aukast á Robbie Keane að skora sitt fyrsta mark fyrir Rauða herinn. Dimitar Berbatov, fyrrum liðsfélagi Keane hjá Tottenham, mun líklega spila sinn fyrsta leik í treyju United en líklegt er þó að Ferguson haldi sig við Wayne Rooney og Carlos Tevez í framlínunni. Þá vonast Ferguson eftir því að Michael Carrick nái að spila leikinn eftir að hafa jafnað sig á ökklameiðslum. - óþ
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Hrækti á vítapunktinn og víti ÍBV fór forgörðum Íslenski boltinn „Ætla að taka frí langt fram á vetur“ Íslenski boltinn Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Gaf Arsenal afsvar en var hvergi sjáanlegur í sigri Fótbolti Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Enski boltinn „Arna Sif spilaði eins og þrír leikmenn“ Íslenski boltinn Völsungur á lífi eftir ótrúlegt mark Íslenski boltinn „Draumurinn er að sjálfsögðu að ná Evrópusæti“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira