Viðræður þegar hafnar um frið fyrir botni Miðjarðarhafs 26. nóvember 2007 12:18
Samningamenn Palestínumanna og Ísraela eru þegar farnir að ræða saman um frið fyrir botni Miðjarðarhafs þó að eiginlegar samningaviðræður hefjist ekki fyrr en á morgun. Þeir eru allir komnir til Washington í Bandaríkjunum og eiga að hitta Bush forseta síðar í dag. Ahmet Qureia, Saeb Erakat og aðrir samningamenn Palestínumanna hafa ekki sést mikið undanfarin ár en nú eru þeir komnir til Bandaríkjanna til að hitta ísraelska ráðamenn. Þótt ekki sé nema tuttugu mínútna ökuferð milli skrifstofa þeirra að öllu jöfnu þá er fundurinn haldinn í Bandaríkjunum. Bandaríkjastjórn hefur einsett sér að þrýsta á um að samningar náist um framtíð Palestínu nú þegar rúmt ár er eftir af kjörtímabili Bush Bandaríkjaforseta. Sams konar viðræður fóru fram fyrir átta árum, þegar Clinton þáverandi forseti var að ljúka valdatíð sinni, en þær fóru út um þúfur og síðari uppreisn Palestínumanna blossaði upp skömmu síðar. Viðræðurnar hefjast formlega á morgun í Annapolis, sem er nálægt Washington borg, en í dag hitta leiðtogar samninganefndanna Bush forseta. Samningamennirnir hittust óvænt í gærkvöldi og talið er að þeir hafi verið að undirbúa viðræðurnar. Í Ísrael hafa verið gerðar miklar öryggisráðstafanir. Yfirvöld óttast að andstæðingar samninga reyni að hafa áhrif á viðræðurnar í Bandaríkjunum með því að fremja hryðjuverk á meðan þær standa yfir. Hamas-flokkurinn, sem ræður ríkjum á Gaza ströndinn, tekur ekki þátt í viðræðunum. Sýrlendingar og Sádi-Arabar hafa nú tilkynnt að þeir muni líka mæta til Annapolis. Þátttaka Sýrlendinga þykir mikilvæg og glæðir eitthvað daufar vonir um að árangur verði af fundinum.
Mest lesið Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Erlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Íhugar að leggja á sykurskatt Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent Mánudagsmorgun í Kaffistofu Samhjálpar Innlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Innlent Happdræti Háskólans varar við svikurum Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Erlent Fleiri fréttir Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Sjá meira