Hljóti að koma til greina að hækka eftirlaunaaldur 17. apríl 2007 09:35
Samtök atvinnulífsins telja það brýnt að afnema allar hindranir fyrir atvinnuþátttöku eldri starfsmanna og að það hljóti að koma til greina að hækka eftirlaunaaldur þar sem fólk á aldrinum 65-70 ára búi við mun betri heilsu en áður. Á vef samtakanna er bent á að sú þróun muni halda áfram og vísað í nýtt rit samtakanna um Ísland árið 2050. Þar er meðal annars að finna mannfjöldaspá sem gerir ráð fyrir að Íslendingar verði 400 þúsund árið 2050. Þá verði aldurssamsetning íslensku þjóðarinnar mjög frábrugðin því sem nú er og fólk á eftirlaunaaldri, 65 ára og eldri, rúmlega fjórðungur þjóðarinnar í stað 12 prósenta nú. Enn fremur fimmfaldist fjöldi Íslendinga 80 ára og eldri fram til 2050, úr níu þúsund í 45 þúsund. Þá er gert ráð fyrir því að árið 2050 verði ævilíkur karla við fæðingu 86,5 ár og kvenna tæp 90 ár og lenging meðalævi frá því sem nú er verði þannig 7,5 ár hjá körlum og 7 ár hjá konum. Þá muni það tímabil sem fólk njóti lífeyris lengjast um tæp 30 prósent fram til ársins 2050. Hins vegar muni Íslendingum á vinnumarkaði fjölga tiltölulega hægt á komandi árum og mun fjölgunin stöðvast eftir u.þ.b. tvo áratugi. Því verði vinnuframlag erlends starfsfólks ein meginforsenda hagvaxtar. Hægur vöxtur vinnuafls kalli ekki aðeins á lengri starfsævi heldur þurfi einnig að fá yngra fólk fyrr inn á vinnumarkaðinn og hafi Samtök atvinnulífsins því lagt til að nemendur hefji nám einu ári fyrr í framhaldsskóla og tveimur árum fyrr á háskólastigi.
Mest lesið Hafði ritað „Breivik“ og „Drepið Trump“ á skotvopnin Erlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Friður enn fjarlægur og Trump missir móðinn Erlent Játning á borðinu í umfangsmestu þjófnuðum seinni tíma Innlent Skólamál í Kópavogi: Bókun eftir bókun á fundi bæjarstjórnar Innlent Hafna „órökstuddum fullyrðingum“ Sigurðar Inga Innlent Þvættuðu milljarða af illa fenginni rafmynt á Íslandi Innlent Sé hægt að gera byltingu í íslensku heilbrigðiskerfi Innlent Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Innlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Innbrot og menn til ama á útivistarsvæði Innlent Fleiri fréttir Komu göngumanni til bjargar við Lakagíga Þvættuðu milljarða af illa fenginni rafmynt á Íslandi Játning á borðinu í umfangsmestu þjófnuðum seinni tíma Innbrot og menn til ama á útivistarsvæði Sé hægt að gera byltingu í íslensku heilbrigðiskerfi Skólamál í Kópavogi: Bókun eftir bókun á fundi bæjarstjórnar Hafna „órökstuddum fullyrðingum“ Sigurðar Inga Þyrlan kölluð út vegna slasaðs manns í Gemludal Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Vara við svikapóstum í þeirra nafni Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Faðir plokksins kenndi ráðherra að plokka Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Kári Stefánsson í beinni, erfiður hraðbanki og Dönum ekki skemmt Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Sjá meira