Ríkið mesti lífeyrisþeginn 3. maí 2006 18:08 MYND/Hari
Ríkið er mesti lífeyrisþeginn að mati Stefáns Ólafssonar prófessors við Háskóla Íslands. Hann segir eldri borgara og öryrkja hafa orðið eftir í góðæri síðustu ára og að ójöfnuður á Íslandi geti orðið jafn mikill og í Bandaríkjunum ef ekki verði gripið til stórtækrar uppstokkunar á samspili almannatryggingakerfis og skattkerfis. Félag eldri borgara og Öryrkjabandalagið stóð í dag ásamt ASÍ, Starfsgreinasambandinu, BSRB og Félagsvísindastofnun fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Skattar og skerðingar. Meðal þeirra sem héldu fyrirlestra þar voru Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, sem rannsakað hefur þróun skattbyrði og skerðingu á lífeyrisgreiðslum síðustu árin. Stefán benti á að fyrirtæki og fjármagnseigendur hefðu notið góðs af góðæri síðustu ára en sama mætti ekki segja um lífeyrisþega. Það væri vegna aukinnar skattbyrgði og reglna í almannatryggingakerfinu um að lífeyrir þaðan skerðist þegar menn hafi aðrar tekjur, þar á meðal úr lífeyrissjóðakerfinu. Skerðingin sé of mikil og geri það að verkum að ríkið njóti á bilinu 66 til 85 prósenta af þeim lífeyri sem verið sé að greiða fólki úr lífeyrissjóðunum. Ríkið á Íslandi sé því í raun stærsti lífeyrisþeginn hjá lífeyrissjóðum landsins. Stefán bendir á að ef þróunin verði sú sama áfram geti blasað við ófagurt ástand eftir tíu ár. Ef þróunin haldi áfram verði álíka ójöfn tekjuskipting á Íslandi og í Bandaríkjunum í dag en það sé ein ójafnasta tekjuskipting sem fyrirfinnist á Vesturlöndum og tengist gríðarlegum þjóðfélagsvanda vestan hafs. Stefán segir þörf á stórtækum aðgerðum, uppstokkun á almannatryggingakerfinu og skattkerfinu og sérstaklega samspili þeirra. Fyrirkomulag þessarra mála hér á landi sé fáheyrt og það bitni mjög á lífeyrisþegum nú á dögum.
Fréttir Innlent Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira