Hjörtur Hjartarson hefur lokið keppni 2. ágúst 2006 14:53 Úr leik ÍA og Keflavíkur
Hjörtur Júlíus Hjartarson leikmaður ÍA í Landsbankadeild karla leikur ekki meira með liðinu í sumar. Hann var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann vegna framkomu sinnar í leik ÍA og Keflavíkur 23. júlí síðastliðinn. Guðmundur Viðar Mete leikmaður Keflavíkur sem átti þátt í þeirri uppákomu var dæmdur í eins leiks bann. Hjörtur hefur viðurkennt í fjölmiðlum að hafa kallað Guðmund "Tyrkjadjöful" og sagt honum að "koma sér heim" í umræddum leik. Hjörtur heldur því hins vegar fram að Guðmundur hafi hótað sér líkamsmeiðingum inni á vellinum og látið óviðurkvæmileg orð í sinn garð falla sem hafi verið kveikjan að atvikinu. Aganefnd KSÍ fundaði síðdegis í gær og komst að þeirri niðurstöðu að báðir leikmennirnir yrðu látnir sæta leikbönnum, Hjörtur í tvo leiki en Guðmundur í einn leik. Aganefndin rökstyður ekki úrskurði sína í agamálum á opinberum vettvangi. Þau vinnubrögð hafa tíðkast svo árum skiptir og stendur áfrýjun í málinu ekki til boða. Það mun því ekki skýrast nákvæmlega af hverju Guðmundur Mete var settur í leikbann þó beinast liggi við að það sé vegna orðaskipta hans og Hjartar í umræddum leik. Keflvíkingar hafa hins vegar neitað gagnásökunum Hjartar og eru vonsviknir með úrskurðinn. Hjörtur sem stundur nám í Bandaríkjunum heldur utan síðar í mánuðinum en á þeim tíma verða aðeins tveir leikir á dagskrá hjá ÍA. Hann hefur því lokið keppni með liðinu í sumar. En aganefndin úrskurðaði fleiri leikmenn úr Landsbankadeild karla í leikbann í gær. Skagamenn verða einnig án Igor Pesic í næsta leik gegn Valsmönnum en hann fékk eins leiks bann vegna 6 áminninga, Stig Krohn Haaland hjá Breiðabliki fékk eins leiks bann vegna 4 áminninga og missir af leik næsta leik liðsins gegn Grindavík, og að lokum fékk Keflvíkingurinn Baldur Sigurðsson eins leiks bann vegna 4 áminninga og missir eins og Guðmundur Mete af leiknum gegn KR.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Fleiri fréttir Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Dagskráin: Kemst Gunnlaugur Árni í gegnum niðurskurðinn á US Open? Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Sjáðu pútt Gunnlaugs Árna á fjórðu holu Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Beint: Gunnlaugur Árni á US Open Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Rástími Gunnlaugs Árna nú settur klukkan 20:20 Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open Fylgstu með þessu á sögulegu U.S. Open móti fyrir Íslendinga Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný Spila æfingarleik á meðan HM stendur Erfiðar aðstæður gætu hjálpað Gunnlaugi Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Sjá meira