Erlent

Kínverskir gervihnettir til umhverfisrannsókna

Gervinhettirnir eru nú komnir á sporbaug um jörðu.
Gervinhettirnir eru nú komnir á sporbaug um jörðu. MYND/AP

Kínverjar skutu í morgun upp tveimur gervihnöttum sem munu senda heim upplýsingar um umhverfið í geimnum. Gervihnettirnir munu meðal annars safna upplýsingum um geislun í geimnum og fleiri tengd málefni. Þeim var skotið upp frá Shanxi-héraði í Kína og komust vandkvæðalaust á fyrirfram ákveðna sporbauga.

Búist við að þeir endist í um það bil tvö ár en þeir leysa af hólmi aðra tvo gervihnetti sem hafa verið á sporbaugi um tveggja ára skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×