Erlent

Yfir 100 bein hafa fundist í grunni Tvíburaturnanna

MYND/AP

Fleiri bein hafa fundist í grunni Tvíburaturnanna í holræsaopum og verkfærageymslum. Varaborgarstjóri New York borgar sagði einnig í gær að 12 önnur svæði hefðu fundist sem yrðu fínkembd næstu daga. Meira en hundrað bein hafa fundist síðustu fimm daga síðan byggingarverkamenn rákust á fyrstu beinin þar sem verið er að útbúa neðanjarðarlestarstöð.

Beinin sem fundist hafa eru allt frá örlitlum beinflísum, upp í auðþekkjanleg bein úr búki, fótum, höndum og höfði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×