Kárahnjúkavirkjun örugg eftir endurbætur 22. ágúst 2006 18:27
Kárahnjúkastífla er örugg og mjög litlar líkur eru á því að sprungusvæði undir henni geti skaðað stífluna. Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi sem Landsvirkjun hélt í dag þar sem niðurstöður sérfræðinganefndar stofnunarinnar voru kynntar. Til að taka af allan vafa voru gerðar endurbætur á Kárahnjúkastíflu sem eiga að koma í veg fyrir sprungumyndun á stíflunni. Undanfarna daga hefur sprungusvæði á lónstæði Hálslóns verið mikið í umræðunni. Efasemdir hafa verið uppi um hvort Landsvirkjun hafi látið rannsaka svæðið nægilega og hvort hönnuðir Kárahnjúkavirkjunar hafi tekið tillit til þessa sprungusvæðis.Kristján Sæmundsson, jarðfræðingur er annar höfundur skýrslunnar um sprungusvæðið sem kom út í fyrra. Áður hafði Grímur Björnsson jarðfræðingur skilað inn greinagerð til landsvirkjunar þar sem hann lýsti yfir áhyggjum sínum af því að þarna væru sprungur. Grímur hefur verið settur í fjölmiðlabann um þessa greinagerð af Orkuveitu Reykjavíkur að því er Orkuveitan segir vegna þess að starfsmönnum veitunnar sé ekki heimilt að tala um málefni samkeppnisaðila. Við spurðum Kristján hvort hann deildi áhyggjum Gríms en hann sagðist ekki leggja mat á það enda væri hann fræðimaður sem rannsakaði svæðið og skilaði inn skýrslu þar að lútandi. Árið 2004 kom svo ljós að sprungur á svæðinu voru yngri en áður var talið. Eins komu í ljós sprungur sem voru áður óþekktar. Að sögn Kristján Más Sigurjónssonar, verkefnastjóra við hönnun Kárahnjúkavirkjunar þá hafa verið gerðar endurbætur á stíflunum á svæðinu til samræmis við þessar nýju niðurstöður. Þá hafa verið gerðar viðbætur á Kárahnjúkastíflu og Desjarárstíflu til að auka öryggi stíflanna Kristján segir að Kárahnjúkastífla sé að mestu leyti eins upp byggð og Campus Novus í Brasilíu en í ljós ljós hafa komið sprungur í þeirri stíflu. Kristján segir að steypan sé sterkari í Kárahnjúkastíflu en í Campus Novus og að stíflugrunnurinn og fyllingarefnið sé öðurvísi og þéttara hér á landi.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira