Innlent

Forsætisráðherra afhjúpar minningarskjöld í Tallin

Geir H. Haarde, forsætisráðherra afhjúpaði minningarskjöld á Íslandstorgi í Tallin í dag. Minningarskjöldurinn stendur fyrir að 15 ár eru frá því að Ísland varð fyrst ríkja til að viðurkenna endurheimt sjálfstæði Eistlands. Forsætisráðherra er ásamt eiginkonu sinni, Ingu Jónu Þórðardóttur í opinberri heimsókn í Eistlandi. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra Eistlands voru viðstaddir afhjúpunina.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×