Ný verslanamiðstöð 21. ágúst 2006 18:18
Ef tillögur þróunarfélagsins Þyrpingar hf hljóta náð fyrir augum skipulagsnefndar Seltjarnarnessbæjar verður verslanamiðstöð byggð á rúmlega tveggja hektara landfyllingu norðaustur af Eiðistorgi Samkvæmt tillögum Þyrpingar yrði landfyllingin norðaustan við gatnamót Norðurstrandar og Suðurstrandar, þar sem bensínstöð Skeljungs er staðsett. Haft er að augnamiði að byggingarnar falli vel inn í umhverfið, húsin verða ekki háreist og talsverð vinna verður lögð í landslagsvinnu á svæðinu í kring, með grænum svæðum og göngustígum. Að sögn Odds Víðissonar, framkvæmdastjóra Þyrpingar, fór fyrirtækið út í þessa hugmyndavinnu til að mæta þörfum verslunar á Seltjarnarnesi. Hagkaupsverslunin á Eiðistorgi er í 30 ára gömlu húsi og til stendur að verslunarhús Bónuss við Hrólfsskálamel verði rifið til að rýma fyrir íbúðarhúsnæði. Samkvæmt teikningum Þyrpingar er áætlað að Hagkaup fái 4000 fermetra gólfflöt fyrir nýja verslun og ný verslun Bónuss fái 1200 fermetra. Tillögurnar voru lagðar fyrir skipulags- og mannvirkjanefnd Seltjarnarnessbæjar á fimmtudaginn en að sögn formanns nefndarinnar var málið ekkert rætt á fundinum og verður ekki rætt fyrr en á fimmtudaginn í næstu viku. Hann sagði hins vegar ljóst að ef hugmyndir Þyrpingar yrðu að veruleika myndi stóraukast vöruúrval sem Seltirningum og nærsveitungum stæði til boða og þar með aukast möguleikar þeirra til að versla í heimabyggð.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Fleiri fréttir „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Sjá meira