Ríkisstjórnin hefur hundsað viðvaranir 13. júní 2006 13:38 Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. MYND/Teitur
Ríkisstjórnin hefur hundsað viðvaranir um að efnahagsstjórnin sé í ólagi og hefur stór hluti launafólks orðið fyrir verulegri kaupmáttarrýrnun undanfarið vegna þróunar efnahagsmála. Forseti Alþýðusambandsins segir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tillögum ASÍ um aðkomu stjórnvalda að endurskoðun kjarasamninga valda vonbrigðum. Forsætisráðherra er þó vongóður um að samkomulag náist í vikunni. Á föstudaginn funduðu fulltrúar Alþýðusambands Íslands með fulltrúum ríkisstjórnarinnar þar sem rætt var um aðkomu stjórnvalda að endurskoðun kjarasamninga. Tillögur ASÍ fólu meðal annars í sér að tekið yrði upp lægra skattþrep á lægri tekjur, að breytingar verði gerðar á vaxtabótum og fólki tryggðar bætur þrátt fyrir hækkun fasteignamats. Að breytingar yrðu gerðar á barnabótum þannig að aldurinn yrði hækkaður í 18 ára og að framlög yrðu aukin í starfsmenntamálum og breytingar gerðar á eftirlaunafrumvarpi þingmanna. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, varð fyrir vonbrigðum með fundinn. Hann segir það liggja fyrir að ríkisstjórnin hafi hafnað tillögum um nýtt skattaþrep en sé tilbúin að skoða bæði vaxtabætur og barnabætur og fjármuni til fræðslumála. Ríkisstjórnin hefur líka hafnað endurskoðun varðandi löggjöf um aukin lífeyrisréttindi þingmanna og æðstu embættismanna. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun að kjarasamningarnir hefðu verið ræddir á ríkisstjórnarfundi. Hann hefði verið í sambandi við aðila vinnumarkaðarins og væri vongóður um að það tækist í vikunni að koma þessu máli saman. Grétar segir það deginum ljósara að verulegur hluti af félagsmönnum ASÍ hafi þegar orðið fyrir umtalsverðri kaupmáttarrýrnun. Þróun verðbólgu sé líka mjög mikið áhyggjuefni. Grétar segir ASÍ hafa varað við því í mörg misseri, eins og nánast allir aðrir aðilar, bæði innlendir og erlendir, að efnahagsstjórnin hér á landi væri ekki í lagi og að hluta til sé verið að uppskera nú vegna þessa. Halldór svaraði gagnrýni á efnahagstjórnina í morgun á þann veg að ástandið í þjóðfélaginu sé ekki skelfilegt. Mikil atvinna sé og miklar tekjur og ástandið sé því gott. Hann segir ljóst að verðbólga sé meiri en hann hefði viljað sjá en hann telji að þetta sé tímabil sem gangi yfir. Þrátt fyrir að oft hafi verið sveiflur í efnahagslífinu þá sé ástandið í þjóðfélaginu mjög gott.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira