Innlent

Starfsfólk Varnarliðsins boðað á fund með Geir H. Haarde

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur boðið starfsfólki Varnarliðsins til fundar í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja næstkomandi mánudag. Fundurinn er framhald af fundi bæjarstjóra með starfsmönnum sem haldinn var þann 21. mars sl. í framhaldi þess að tilkynnt var um brotthvarf herliðsins frá Keflavíkurflugvelli. Geir H. Haarde utanríkisráðherra mætir á fundinn og mun fjalla um stöðu mála.  Fundurinn hefst kl. 17:00. þann 8. maí.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×