Rafstuðsólar geta gert hunda árásargjarna og sálsjúka 5. maí 2006 13:45 MYND/ÞÖK
Hundaólar með rafstuði, sem seldar eru í verslun í Reykjavík, geta gert hunda árásargjarna og sálsjúka, að sögn hundaatferlisfræðings. Hann vill að bannað verði með lögum að flytja ólarnar inn og selja þær. Greint var frá því í fréttum NFS í fyrradag að í Sportbúð Títans á Krókhálsi eru seldar hálsólar fyrir hunda sem hægt er að gefa rafstuð með. Þær hafa verið þar til sölu í tæpt ár. Um nokkrar gerðir er að ræða og að sögn Fannars Pálssonar, rekstrarstjóra verslunarinnar, eru ólarnar bæði notaðar til að þjálfa veiðihunda og sporna við hegðunarvandamálum hjá hundum. Á fjarstýringu sem fylgir ólunum eru tveir hnappar, annar þeirra til að gefa hljóðmerki sem kemur úr ólinni og er þá ætlað að hindra tiltekna hegðun hjá hundinum. Ef það ber ekki tilætlaðan árangur er hinn hnappurinn notaður, sem gefur hundinum rafstuð. Fannar segir að eftir örfá skipti verði nóg að gefa hljóðmerkið því hundurinn tengir það við rafstuðið. Löglegt er að flytja ólarnar inn og selja þær, en ólöglegt að nota þær. Björn Styrmir Árnason hundaatferlisfræðingur er ekki hrifinn af notkun þessara óla. Hann segir að ef vandamálið hjá hundinum sé tengt kvíða eða geðshræringu sé mjög auðvelt, ef hinn almenni hundaeigandi notar tækið, að gera hundinn meira kvíðinn, og jafnvel árásargjarnan og sálsjúkan. Björn vill að breyting verði gerð á dýraverndunarlögum til að stöðva innflutning og sölu ólanna, enda séu dýraverndarráð og dýraverndarsamtök sammála um að slíkt þurfi að gera.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Buxnalaus Lalli olli glundroða Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira