Innlent

Ekkert gos í skólanum

MYND/AP

Nokkrir af stærstu drykkjarvöruframleiðendum í Bandaríkjunum hafa skrifað undir samkomulag um að kaloríuríkir gosdrykkir verði framvegis teknir úr sölu í grunn- og miðskólum. Framvegis geta börnin því aðeins keypt ósykraðan ávaxtasafa, mjólk eða vatn í skólunum. Hitaeiningasnauðari gosdrykkir verða hins vegar leyfðir í framhaldsskólum.

Samkomulagið er til komið vegna vaxandi áhyggja af holdafari bandarískra barna, offita og heilsufarsvandamál henni tengd verða æ algengari. Það voru heilsuverndarsamtök í landinu sem höfðu milligöngu um samninginn en undir hann skrifa fyrirtækin Cadbury Schweppes, Coca cola og Pepsico.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×