Í-listinn fengi hreinan meirihluta 2. maí 2006 21:03
Í-listinn, sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna, Frjálslyndra og óháðra á Ísafirði, næði hreinum meirihluta í bæjarstjórn ef kosið yrði nú. Þetta kemur í ljós í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir NFS. Átta ára valdatíð sjálfstæðismanna og framsóknarmanna virðist á enda samkvæmt þessu. Félagsvísindastofnun gerði könnunina dagana 26. til 28. apríl á Ísafirði og studdist við 600 manna úrtak. Svarhlutfall var 68 prósent. Samkvæmt könnuninni fengi Í-listi, sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Frjálslyndra og óháðra 52 prósent atkvæða, en samtals fengu flokkarnir um 43 prósent atkvæða í síðustu kosningum. Þeir bæta því við sig tæpum tíu prósentum. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn tapa hins vegar fylgi frá síðustu kosningum, Sjálfstæðisflokkurinn um fjórum prósentum og Framsókn þremur og hálfu. Yrðu þetta niðurstöðu kosninganna missa flokkarnir tveir sinn manninn hvor í bæjarstjórn og þar með er meirihlutinn fallinn. Í-listinn fengi hins vegar fimm mennn og hreinan meirihluta en aðeins Samfylkingin og Frjálslyndir eiga nú bæjarfulltrúa, Samfylkingin tvo en Frjálslyndir einn. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna, segir könnunina ekki koma sér á óvart. Hann bendir á að kosningabaráttan sé ekki að fullu hafin á Ísafirði og að sjálfstæðismenn geti séð sóknarfæri í þessum tölum. Sigurður Pétursson, oddviti Í-listans, segir niðurstöðurnar í takt við það sem forsvarsmenn Í-listans hafi fundið fyrir í samtölum við bæjarbúa. Hann hyggst þó ekki verða bæjarstjóri ef þetta verða niðurstöður kosninga í lok mánaðarins heldur ætlar Í-listinn að auglýsa eftir bæjarstjóra.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira