Erlent

Indverjar og Bandaríkjamenn handsala kjarnorkusamning

George Bush Bandaríkjaforseti við komuna til Indlands í morgun.
George Bush Bandaríkjaforseti við komuna til Indlands í morgun.

Indverjar og Bandaríkjamenn hafa skrifað undir samkomulag um þróun kjarnorku. Þetta kom fram á sjónvarpsstöð í Indlandi fyrr í morgun. George Bush Bandaríkjaforseti er á Indlandi og fundaði með forseta Indlands í morgun. Ekki liggur enn fyrir hvað felst í samkomulaginu sem var handsalað í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×