Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. október 2026 07:39 Um 25 þúsund mótmæltu í París. AP Um 25 þúsund menntaskólanemendur komu saman á Place de la Bastille og héldu áfram mótmælunum sínum í þágu betra menntakerfis. Þúsundir hafa verið handteknir, flestir undir átján ára aldri.
Mótmælin hófust 17. september í úthverfi Parísarborgar en hafa dreifst út um allt land. Mikill fjöldi nemenda, kennara, foreldra og annarra sem styðja mótmælin hélt út á götur í gær og tók þátt í mótmælum sem voru að mestu leyti friðsæl. Mótmælin fóru meðal annars fram í borgunum Lille, Rennes, Nantes, Lyon, Toulon og Marseille. Innviðaráðuneyti Frakklands telur að 71.500 manns hafi mótmælt í gær, þar af tæplega 25 þúsund í París. 375 menntaskólum var lokað vegna þeirra. Menntaskólanemendurnir eru að mótmæla lélegum námsskilyrðum, svo sem yfirfullum kennslustofum, skólabyggingum í niðurníðslu og undirmönnun kennara. Hundruðum skóla hefur verið lokað vegna mótmælanna síðustu daga. Mótmælin voru að mestu leyti friðsæl í gær.AP Í París hópuðust mótmælendur saman á Place de la Bastille, torgi með minnisvarða um frönsku byltinguna árið 1830, veifuðu fánum og sungu þjóðsönginn, Marseillaise. Þegar leið á kvöldið fór óeirðalögreglan að hafa afskipti af mótmælunum samkvæmt The Guardian og notaði táragas til að skipta upp hópnum. Einhverjir mótmælenda hentu flöskum, steinum og öðrum hlutum í lögregluna. Ofbeldi og óeirðir hafa einkennt mótmælin síðustu daga þar sem ítrekað hefur komið til átaka á milli mótmælenda á unglingsaldri og lögreglunnar. Fimmtán ára drengur missti aðra höndina og annar sextán ára nemandi missti sjón á hægra auga eftir að hafa fengið gúmmíkúlu frá lögreglunni í andlitið. Um 6.600 mótmælendur hafa verið handteknir, flestir þeirra eru undir átján ára aldri samkvæmt Euronews. Ráða þrjú þúsund afleysingakennara „Kröfur nemendanna eru mjög svipaðar og kröfurnar sem kennarar hafa gert árum saman. Kerfinu hefur hnignað og það er vegna þess að það hafa ekki verið nein viðbrögð,“ er haft eftir Cathy, sögukennara í menntaskóla í París, í umfjöllun Euronews. Édourard Geffrey, menntamálaráðherra Frakklands, gaf út í gær að þrjú þúsund afleysingakennarar yrðu sendir í skólana þar sem mikill skortur er á kennurum. Þá lofaði Sébastien Lecournu að ríkisstjórnin myndi leggja fram breytingartillögur við fjárlög ársins 2027 til að „breyta sumum kröfum nemendanna í áþreifanlegar aðgerðir, einkum hvað varðar afleysingar kennara“. Þessar tillögur reynast þó ekki nægilegar fyrir alla og hyggjast þau halda áfram að mótmæla þar til fjárfest verði í skólakerfinu fyrir tíu milljarða evra. Sú upphæð er talin af mótmælendunum vera það sem þarf til að breyta skólakerfinu til hins betra.
Frakkland Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fleiri fréttir Sigurlíkur Navalnaja ruku upp Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Sjá meira