Fangar enn beittir ofbeldi í Abu Ghraib fangelsinu 15. febrúar 2006 18:41
Enn einu sinni hafa myndir af hrottafengnum misþyrmingum fanga Bandaríkjamanna í Abu Ghraib fangelsinu í Írak komið fyrir augu almennings. Þær eru frá því um líkt leyti og myndirnar sem ollu hneysklun og viðbjóði um allan heim vorið 2004. Nokkrir dagar eru síðan myndband var birt af misþyrmingum breskra hermanna á unglingum í Basra í Írak og í dag sýndi ástralska sjónvarpstöðin SBS myndir af ámóta viðurstyggð. Þær eru sagðar teknar í Abu Ghraib-fangelsinu illræmda síðla árs 2003 og er talið að sama sveit fangavarða og tók myndirnar sem vöktu svo mikla reiði vorið 2004 sé þarna að verki. Í það minnsta bregður fyrir á nýju myndunum parinu Lynndie England og Charles Graner, sem bæði hafa hlotið fangelsisdóma fyrir ofbeldið sem þau sýndu íröskum föngum í haldi Bandaríkjastjórnar. Myndirnar sem birtar voru í dag eru jafnvel enn meira hrollvekjandi en þær sem áður hafa sést. Þar gefur að líta fanga með alvarlega áverka sem virðast vera eftir mjög gróft ofbeldi. Á sumum myndunum má jafnvel sjá lík fólks sem talið er hafa látist í varðhaldinu. Á einu af myndböndunum sést hvar maður sem sagður er geðsjúkur ber höfði sínu ítrekað í stálhurð en fram kom á áströlsku stöðinni að fangaverðirnir hefðu skemmt sér við að niðurlægja hann. Formælandi bandaríska utanríkisráðuneytisins gagnrýndi stöðina í dag fyrir að birta myndirnar þar sem lífi hermanna gæti þar með verið stefnt í hættu. Hann bætti því við að eftir að hneykslið í Abu Ghraib kom upp á sínum tíma hefði verið hart verið tekið á sökudólgunum og ekkert benti til að ofbeldið hefði haldið áfram. Myndirnar hafa þegar verið sýndar á arabískum sjónvarpsstöðum og er næsta öruggt að ólgan í Mið-Austurlöndum sem var ærin fyrir mun magnast enn frekar.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Fleiri fréttir Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Sjá meira