Lífið

Ferskir straumar

Margir litir Basso & Brooke blanda saman hvaða litum sem er og alltaf virðist það koma vel út.
Margir litir Basso & Brooke blanda saman hvaða litum sem er og alltaf virðist það koma vel út.

Basso&Brooke er nýtt og ferskt fatamerki hefur látið að sér kveða í tískuheiminum undanfarið. Hönnuðurinn Christopher Brooke lærði hönnun í London, meðal annars í Central Saint Martins, frægasta hönnunarskóla heims samhliða Parsons í New York. Hann var stílisti fyrir stjörnur á borð við Kylie Minogue, Robbie Williams og Pink áður en hann ákvað að stofna sitt eigið merki með brasilíska hönnuðinum Bruno Basso. Mottóið hjá félögunum var að rugla fólk í ríminu með fatnaði sínum.

Basso&Brooke vildu leika sér með hreyfanleika og hugmyndir manna að ljótum fötum. Hugmyndavinnan á bak við hverja einustu línu er alltaf mjög góð og skemmtileg og stundum eru sýningar þeirra eins og góð teiknimynd. Mikil litagleði og brjáluð munstur einkenna fatnað þeirra en myndirnar tala sínu máli.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.