Íslandsvinir með nýja plötu 11. ágúst 2006 14:30 Ratatat (2004)
Bandaríska hljómsveitin Ratatat er að fara að senda frá sér sína aðra breiðskífu í mánuðinum en henni hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Steinþór Helgi Arnsteinsson kynnti sér sögu sveitarinnar og efni nýju plötunnar. Dúettinn Ratatat var stofnaður í Brooklyn hverfi New York borgar árið 2001 en meðlimir sveitarinnar, þeir Mike Stroud og Evan Mast, höfðu lengi fyrir það verið að aðhafast í tónlistargeiranum. Meðal annars hefur Stroud spilaði og leikið með emo-rokk sveitinni Dashboard Confessional. Hljómsveitin hét í upphafi Cherry en seinna var nafninu breytt í Ratatat. Cherry nafnið fékk þó að lifa aðeins lengur og þá sem nafnið á lokalagi fyrstu plötu Ratatat.Fengu plötusamning hjá XL plötufyrirtækinuá Airwavaes Ratatat spilaði á ógleymanlegum tónleikum á Nasa í fyrra.fréttablaðið/sigurjónÞó svo að Stroud og Mast hafi verið að skiptast á hugmyndum, hljóðum og tónum í tvö ár byrjuðu hjólin ekki fyrst að snúast fyrr en í lok árs 2003. Þá kom út smáskífan Seventeen Years hjá plötufyrirtæki Mast og bróður hans, Audio Dregs, sem vakti athygli innan tónlistarheimsins og varð til þess að Ratatat skrifaði undir samning hjá plötufyrirtækinu XL recordings. Þeir hjá XL endurútgáfu Seventeen Years sem síðan hefur ómað á börum og diskótekum víða um heim. Á fyrri hluta árs, 2004, kom síðan loks út fyrsta breiðskífa Ratatat, samnefnd sveitinni. Hafa hitað upp fyrir Interpol og fleiriSvalir Þeir Mike Stroud og Evan Mast, sem skipa sveitinni Ratatat, hafa verið að vekja athygli undanfarin ár fyrir nýstarlegan hljóðheim sveitarinnar.Platan vakti mikla athygli meðal tónlistarmiðla víða um heim og hið skemmtilega samspil gítars og hljóðgervla við sönglausa og afar dillivæna hip-hop takta í anda Daft Punk virtist virka vel innan um diskó-pönk bylgjuna sem þá ríkti. Hljómsveitin vakti ekki bara hrifningu meðal tónlistarpressunnar heldur einnig hjá tónlistarmönnum hvaðanæva af.Fékk Ratatat þá tækifæri til þess að hita upp fyrir ekki ómerkari hljómsveitir en Interpol, Clinic, Franz Ferdinand, Tortoise og The Killers. Íslendingar hafa einmitt fengið að kynnast Ratatat á tónleikum en þeir spiluðu á Airwaves hátíðinni í fyrra við mikla gleði áhorfenda, sem gjörsamlega trylltust þegar Seventeen Years var spilað. Ógleymanlegt augnablik.Ný platan klassískClassics (2006)Eftir tveggja ára bið er loks von á nýrri plötu frá Ratatat. Hún mun bera nafnið Classics og kemur út þann 22. ágúst næstkomandi. Við fyrstu hlustun virðist platan vera rökrétt framhald fyrstu skífunnar þar sem Mast og Stroud hafa þroskast en ekki tapað sköpunargleðinni. Í nýlegu viðtali sagði Mast að meginmunurinn á plötunum tveimur væri að nú hefði þeir fengið mun meiri tíma, pláss og tæki til þess að vinna að plötunni. Litlu hlutirnir eru það sem gera plötuna að því sem hún er... öðruvísi hljóð, öðruvísi hugmyndir. [...] Ég held að fólk sem þekki fyrri plötuna eigi eftir að vera hissa.Fyrsta smáskífan af nýju plötunni, Wildcat, er nú þegar komin út og það verður að segjast alveg eins og er að þar er á ferð partíslagari af bestu gerð, óvæntur og kraftmikill. Hægt er að hlusta á lagið á síðunni www.myspace.com/ratatatmusic. Síðan er bara að bíða og sjá hvernig viðbrögðin við nýju plötunni verða en fólk má alveg búast við því að sjá og heyra mun meira frá hljómsveitinni Ratatat á komandi misserum.
Menning Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fleiri fréttir „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Sjá meira