Lífið

Hermir eftir Sesari A

Beck Gefur út nýja plötu í október. Umslag plötunnar verður autt en aðdáendur geta skreytt plötuna sjálfir.
Beck Gefur út nýja plötu í október. Umslag plötunnar verður autt en aðdáendur geta skreytt plötuna sjálfir.

Tónlistarmaðurinn Beck Hansen sendir frá sér nýja plötu í byrjun október. Platan hefur fengið nafnið The Information og upptökustjóri hennar er Nigel Godrich sem frægastur er fyrir að vinna með Radiohead. Þetta verður sjöunda breiðskífa Becks, en hann hefur auk þess gefið út tvær plötur hjá óháðum fyrirtækjum og svo endurvinnsluplötuna Guerolito.

Meðal laga á The Information verða Cell Phones Dead, Think Im in Love og Nausea. Athygli vekur að kápa plötunnar verður auð en með fylgja límmiðar svo fólk geti skreytt eftir eigin höfði. Þetta minnir óneitanlega á það þegar íslenski rapparinn Sesar A gaf út plötuna Gerðuþaðsjálfur. Plötu Becks fylgir DVD-diskur með myndböndum við öll lögin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.