Tinna teiknar femíníska jólasveina 21. desember 2006 16:15 Tinna teiknar alla jólasveinana með vinstri hendi, þó að hún sé rétthent. MYND/Rósa
Tinna Kristjánsdóttir femínisti hefur teiknað myndir af öllum jólasveinunum sem birtast ein og ein á vef Femínistafélagsins þegar jólasveinarnir koma til byggða. Jólasveinarnir hennar Tinnu eru bleikklæddir femínistar og færa börnum og fullorðnum önnur skilaboð en þeir rauðu. „Hún Katrín Anna, talskona Femínistafélagsins, bað mig í fyrra um að teikna nokkra jólasveina, einn á dag, með þessum óskum jólasveinanna," segir Tinna. Stekkjastaur óskar sér að launamun kynjanna verði útrýmt og Stúfur óskar sér fleiri konur í valdastöður. Allir þrettán hafa þeir femínískar jólaóskir. „Þetta er byggt á körlum sem ég teiknaði með vinstri hendinni fyrir fimmtán árum, sem þeim leist vel á," segir Tinna, sem er þrátt fyrir það rétthent. „Þegar maður er lítill þá prófar maður eitt og annað og að teikna með vinstri hendi er eitt af því. Þetta er eins og að skrifa nafnið sitt afturábak á hvolfi með vinstri hendinni, bara til að sjá hvað maður getur. Þetta er bara ákveðinn stíll." Femínistafélagið gaf út jólakort í fyrra með einum jólasveininum og mun senda út annað núna sem styrktaraðilar og aðrir sem félagið vill óska gleðilegra jóla fá inn um lúguna, til dæmis stjórnmálaöfl. „Ég byrjaði á að gera þetta í fyrra, en þá var þó nokkuð liðið á desember, svo að ég teiknaði bara nokkra. Ég kláraði þá núna í desember, áður en sá fyrsti kom til byggða," segir Tinna." Jólasveinana má sjá á www.feministinn.is, en þá verður alla hægt að skoða þegar Kertasníkir kemur til byggða á aðfangadag. Jólasveinninn Gluggagægir er kominn til byggða. .
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira