Námuverkamennirnir enn fastir í námunni 3. janúar 2006 18:56
Þrettán námuverkamenn eru enn milli heims og helju í námu í Virginíu í Bandaríkjunum og komast ekki út. Baneitrað kolmónoxíð hefur safnast upp í námunni. Leit að mönnunum stóð enn yfir á sjöunda tímanum í kvöld. Sprenging varð í námunni þegar eldingu laust niður í nágrenninu í gær. Við það slökknaði á samskiptatækjum námuverkamannanna og ekki hefur verið hægt að hafa samband við þá síðan. Sex aðrir námuverkamenn, sem komust út, reyndu að ná til félaga sinna en varð ekki ágengt. Í allan dag hafa fjölmargir ættingjar mannanna þrettán beðið við námuna á milli vonar og ótta og reynt að hughreysta hver annan. Biðin er orðin löng enda er liðinn meira en sólarhringur síðan sprengingin varð og margir orðnir úrkula vonar um að mennirnir skili sér heilu og höldnu. Ekki er vitað hversu miklar súrefnisbirgðir mannanna eru eða hversu mikið olnbogarými þeir hafa þar sem þeir sitja fastir. Þeir námamenn sem sluppu segja vinnufélaga sína þrettán hafa lofthreinsitæki þar sem þeir eru en enga súrefniskúta. Síðdegis var borað ofan í námuna og þá kom í ljós að lífshættulegt magn af kolmónoxíði er í loftinu. Kolmónoxið er baneitrað efni og inni í námunni er magn þess nú þrefalt yfir hættumörkum. Ljóst er að mennirnir munu ekki þola þetta andrúmsloft til lengdar. Myndavél sem send var meira en sjötíu metra niður í námuna í dag greindi ekkert lífsmark. Yfirmaður námufyrirtækisins segir samt ekki tímabært að gefast upp, enda séu leitarmennirnir þrautreyndir og á næstu klukkutímunum verði látið sverfa til stáls og öllu tjaldað til í björgunaraðgerðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Erlent Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ Innlent Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Erlent Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Erlent „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Innlent Fleiri fréttir Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Sjá meira