Innlent

Fækkun í rjúpnastofninum

Rjúpur í vetrarbúningi
Rjúpur í vetrarbúningi MYND/Kristján

Talningar Náttúrufræðistofnunar Íslands í vor sýna fækkun á rjúpum. Sums staðar kom fram kyrrstaða og aukning mældist á Austurlandi en að meðaltali sýna talningar 12% fækkun frá síðasta ári. Ástand stofnsins er því ekki í samræmi við væntingar eftir tveggja ára uppsveiflu. Fækkunin nú kemur jafnt fram á friðaða svæðinu á Suðurlandi og á þeim svæðum þar sem rjúpnaveiðar hófust að nýju síðasta haust eftir tveggja ára hlé.

Íslenski rjúpnastofninn sveiflast mikið af náttúrulegum orsökum en síðustu tvo áratugi hefur verið langtíma niðursveifla, sem er ástæða þess að ákveðið var að friða rjúpuna í þrjú ár. Veiðibanni var aflétt eftir tvö þar sem stofninn hafði vaxið gríðarlega. Hlutfallslegur vöxtur stofnsins á árunum 2003-2005 meðan veiðibann var í gildi á sér ekki hliðstæðu en vorin 2004 og 2005 sýndu talningar 80-100% vöxt í stærð stofnsins. Mat á veiðiþoli mun liggja fyrir í ágúst í kjölfar athugana á varpi í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×