Erlent

Gifting samkynhneigðra staðfest í New Jersey

Ákvörðuninni var fagnað á þingpöllum í New Jersey.
Ákvörðuninni var fagnað á þingpöllum í New Jersey. MYND/AP

Löggjafinn í bandaríska fylkinu New Jersey lögfestu í kvöld dóm hæstaréttar fylkisins frá 25. október, þess efnis að samkynhneigðir gætu staðfest sambúð sína með sömu réttindum og hjón sem eru hvort af sínu kyninu. Eining samkynhneigðra para má samt ekki kallast "hjónaband". Ekki var ákveðið hvað sambúðarformið skyldi kallað í staðinn. "Hommaband" gæti hins vegar verið nýyrði á íslensku sem lýsir þessu sambúðarformi, allavega þegar karlmenn eiga í hlut.

Massachusetts er því enn eina ríki Bandaríkjanna þar sem hjónabönd samkynhneigðra eru ekki einasta viðurkennd, heldur mega einnig kallast sínu rétta nafni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×