Sprengt við Háskóla Íslands 8. maí 2006 12:01
Sprengivinna við háskólatorg Háskóla Íslands hefst í vikunni þegar nemendur eru í miðjum prófalestri. Háskólayfirvöld segja ómögulegt að fresta framkvæmdunum fram yfir prófatörnina sem lýkur um miðjan maí. Framkvæmdirnar hófust fyrir nokkrum vikum og er nú þegar mikil röskun á gönguleiðum á háskólasvæðinu og bílastæðum nemenda. Framkvæmdirnar koma sér verst fyrir nemendur í félagsfræði- og hagfræðideildum í Odda og lögfræðistúdenta í Lögbergi. Samkvæmt tilkynningu frá skólayfirvöldum verður sprengt allt að tíu sinnum á dag, frá átta á morgnana til níu á kvöldin. Sigurður Örn Hilmarsson, formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands segir ráðið hafa þrýst á um að nemendur fengju að klára prófatörnina áður en sprengivinnan hæfist. Það hafi þó verið talið ómögulegt miðað við verkáætlun sem gerir ráð fyrir að húsið verði tekið í notkun 1.des. 2007. Hann segir skólayfirvöld þó hafa komið til móts við þarfir nemenda á annan hátt, meðal annars með góðu upplýsingaflæði til nemenda og með því að auka lestraraðstöðu í byggingum sem eru fjær framkvæmdasvæðinu. Engin próf eru þó í byggingunum sem liggja að framkvæmdasvæðinu heldur er prófað í KR-heimilinu og í Eirbergi við Landsspítalann. Nemendur sem NFS ræddi við sögðu lesturinn þó ekki hafa raskast mikið vegna hávaða en það gæti þó breyst þegar farið væri að sprengja.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira