Íbúðarsamtökin Betri byggð á Álftanesi ósátt 5. maí 2006 17:58
Íbúðarsamtökin Betri byggð á Álftanesi segja vinnubrögð meiri hlutans í bæjarstjórn skammarleg um ný samþykkt deiliskipulag miðsvæðis bæjarinns. Í tilkynningu frá samtökunum segir að um helmingur kosningabærra íbúa Álftaness eða tæplega 700 manns skrifuðu á undirskriftalista í desember s.l. gegn miðbæjarskipulagi Álftaness sem þá var í auglýsingu. Krafan var að fá fram nýtt skipulag og að íbúar fengju að velja á milli ólíkra tillagna. Í kjölfarið lýsti bæjarstjóri því yfir að framkvæmdum á svæðinu yrði frestað fram yfir kosningar svo að íbúarnir gætu kosið um miðbæjarskipulag. Þrátt fyrir yfirlýsinguna lét meiri hlutinn vinna deiliskipulagið áfram og samþykkti það í bæjarstjórn en felldi tillögu minni hlutans að frestað yrði að senda Skipulagsstofnun hið umdeilda deiliskipulag til yfirferðar þar til fram yfir kosningar. Breytingarnar sem gerðar voru taka aðeins til mjög takmarkaðs hluta miðsvæðisins, þ.e. með nýjum aðkomuvegi frá Breiðumýri að skólasvæði. Skilaboð þeirra 700 íbúa sem skrifuðu undir undirskrifalistana voru einfaldlega þau að skipulagstillögunni var hafnað í heild sinni. Öllum að óvörum var kynningarefni, bæklingur á þykkum glanspappír og margmiðlunardiskur, nýlega borið í hús á Álftanesi á kosnað bæjarsjóðs og þeirra hundruða íbúa sem mótmæltu miðbæjarskipulaginu. Spurningin er hvaða tilgangi kynningarefnið þjónar nú og fyrir hvern það er hugsað? Hefði ekki verið eðlilegra að kynna íbúunum miðbæinn áður en deiliskipulagið var samþykkt? Eða er tilgangur kynningarefnisins að afla meiri hlutanum vinsælda á meðal kjósenda nú rétt fyrir kosningar? Íbúasamtökin betri byggð á Álftanesi lýsa undrun sinni og vonbrigðum með framgöngu meiri hlutans í bæjarstjórninni í vinnuferlinu öllu og því virðingarleysi sem megin þorra íbúa sveitarfélagsins Álftaness er sýnt.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira