Hermenn ákærðir fyrir morð á 24 borgurum í Írak 22. desember 2006 12:28
Átta bandarískir hermenn voru í gær ákærðir fyrir að hafa myrt 24 Íraka í þorpinu Haditha í Írak í nóvember á nýliðnu ári, þar af sex börn á aldrinum tveggja til 11 ára. Sveitarforinginn, Justin Sharratt, á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Hann er ákærður fyrir að hafa sjálfur myrt 12 manns og að hafa skipað hermönnum undir hans stjórn að myrða 6 til viðbótar. Hinir sjö hljóta misþungar ákærur, allt frá því ákærum fyrir að tefja rannsókn málsins með röngum vitnisburði upp í meðábyrgð fyrir morð á 12 mönnum. Þetta er ein stærsta glæparannsóknin vegna morða bandarískra hermanna á saklausum borgurum í Írak. Írösk vitni segja að hermennirnir hafi gengið berserksgang eftir að einn úr þeirra hópi lét lífið í sprengjuárás. Fljótlega eftir að ákærurnar voru lesnar upp í gærkvöldi, sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hinar miklu fórnir Bandaríkjamanna í Írak myndu borga sig á endanum, af því að friður í Írak myndi gjörbreyta ásýnd Mið-Austurlanda. Robert Gates, sem tók við embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna á mánudaginn, var hins vegar ekki svo kokhraustur eftir þriggja daga heimsókn hans í Írak, og vildi ekkert gefa upp á blaðamannafundi í Bagdad í dag, hvað hann hyggðist ráðleggja Bush forseta, eða hvort honum litist á hugmyndir forsetans, um að auka tímabundið herafla í Írak.
Mest lesið „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Sjá meira