Erlent

Tvær milljónir Afgana munu þurfa matvælahjálp

MYND/AP

Tvær milljónir manna í Afganistan munu þurfa á matvælahjálp að halda í vetur, eftir að uppskera brást vegna þurrka. Sameinuðu þjóðirnar og afganska ríkisstjórnin hafa kallað eftir tæplega þriggja milljarða fjárframlögum, til viðbótar við rúmlega fimm milljarða sem þegar hafði verið beðið um.

Ofan á þurrkana bætast átök í suðurhluta landsins, þau torvelda alla uppskeru. Einnig hefur verið bent á að aukin ópíumrækt taki pláss frá ökrum sem gefa korn í brauð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×