Erlent

Reka embættismann S.þ. frá Súdan

Jan Pronk ætlar að fara frá Súdan sem fyrst.
Jan Pronk ætlar að fara frá Súdan sem fyrst. MYND/AP

Súdanska ríkisstjórnin hefur skipað háttsettum embættismanni Sameinuðu þjóðanna að hypja sig úr landi innan þriggja daga. Hann skrifaði á einkavefsíðu sína að súdanski herinn hafi beðið ósigur oftar en einu sinni og að lélegur liðsandi væri í hernum.

Talsmaður súdanska utanríkisráðuneytisins segir hann með því hafa brotið samkomulag Sameinuðu þjóðanna við Súdan með því að "tala um viðkvæm mál".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×