Lífið

Tinna teiknar femíníska jólasveina

Tinna teiknar alla jólasveinana með vinstri hendi, þó að hún sé rétthent.
Tinna teiknar alla jólasveinana með vinstri hendi, þó að hún sé rétthent. MYND/Rósa

Tinna Kristjánsdóttir femínisti hefur teiknað myndir af öllum jólasveinunum sem birtast ein og ein á vef Femínistafélagsins þegar jólasveinarnir koma til byggða. Jólasveinarnir hennar Tinnu eru bleikklæddir femínistar og færa börnum og fullorðnum önnur skilaboð en þeir rauðu.

„Hún Katrín Anna, talskona Femínistafélagsins, bað mig í fyrra um að teikna nokkra jólasveina, einn á dag, með þessum óskum jólasveinanna," segir Tinna.

Stekkjastaur óskar sér að launamun kynjanna verði útrýmt og Stúfur óskar sér fleiri konur í valdastöður. Allir þrettán hafa þeir femínískar jólaóskir.

„Þetta er byggt á körlum sem ég teiknaði með vinstri hendinni fyrir fimmtán árum, sem þeim leist vel á," segir Tinna, sem er þrátt fyrir það rétthent. „Þegar maður er lítill þá prófar maður eitt og annað og að teikna með vinstri hendi er eitt af því. Þetta er eins og að skrifa nafnið sitt afturábak á hvolfi með vinstri hendinni, bara til að sjá hvað maður getur. Þetta er bara ákveðinn stíll."

Femínistafélagið gaf út jólakort í fyrra með einum jólasveininum og mun senda út annað núna sem styrktaraðilar og aðrir sem félagið vill óska gleðilegra jóla fá inn um lúguna, til dæmis stjórnmálaöfl.

„Ég byrjaði á að gera þetta í fyrra, en þá var þó nokkuð liðið á desember, svo að ég teiknaði bara nokkra. Ég kláraði þá núna í desember, áður en sá fyrsti kom til byggða," segir Tinna."

Jólasveinana má sjá á www.feministinn.is, en þá verður alla hægt að skoða þegar Kertasníkir kemur til byggða á aðfangadag.

Jólasveinninn Gluggagægir er kominn til byggða.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.