Flugdólgur barði konu sína 18. desember 2006 02:00
Karlmaður á miðjum aldri, sem látið hafði dólgslega í flugvél sem var á leiðinni til Íslands frá Kúbu á vegum ferðaskrifstofunnar Heimsferða, var skilinn eftir í Halifax í Kanada ásamt eiginkonu sinni aðfaranótt sunnudagsins. Flugvélin, sem er í eigu flugfélagsins JetX sem flýgur fyrir Heimsferðir, millilenti í Halifax til að taka eldsneyti og skipta um áhöfn. Hjónin voru vel birg af áfengi sem þau höfðu tekið með sér inn í vélina og voru mjög drukkin. Þegar vel var liðið á flugið byrjaði maðurinn að áreita flugfreyjur og aðra farþega vélarinnar. Að sögn Tómasar Björnssonar, framkvæmdastjóra Heimsferða, höfðu farþegar sem sátu í námunda við manninn fengið sig fullsadda af hegðun mannsins og vildu fá að skipta um sæti til að forðast hann. Þegar stutt var eftir af fluginu til Halifax reyndi eiginkona mannsins að róa hann niður og tók hann þá upp á því að berja hana. Í Halifax ákvað flugstjóri vélarinnar að skilja hann þar eftir því ekki væri forsvaranlegt að hafa manninn áfram um borð í vélinni. Flugvélin hélt áfram ferð sinni án hjónanna og lenti á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun. Eftir hádegi í gær voru hjónin ennþá í Halifax en verið var að vinna í því að koma þeim í flugvél áleiðis til Íslands, að sögn Tómasar.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira