Erlent

Fimm manns létust í lestarslysinu

Lestirnar rákust á við Zoufftgen rétt eftir að lestin fór yfir landamærin frá Luxemborg til Frakklands.
Lestirnar rákust á við Zoufftgen rétt eftir að lestin fór yfir landamærin frá Luxemborg til Frakklands.

Nú er ljóst að færri létust í lestarslysinu í Frakklandi í gær en talið var í fyrstu og er tala látinna fimm, en ekki tólf eins og fréttaskýrendur greindu frá í gær.

Við áreksturinn lyftust sumir vagnanna upp og einn lenti ofan á öðrum með þeim afleiðingum að hann pressaðist saman. Tekist hefur að ná fjórum líkum af fimm, en ekki er ljóst hvort enn er fólk á lífi í rústunum. Fimm manns eru slasaðir, þar af tveir alvarlega.

Björgunarmenn unnu áfram í nótt í flaki tveggja hæða farþegalestarinnar sem skall á vöruflutningalest úr gagnstæðri átt nálægt landamærum Luxemborgar. Yfir þrjú hundruð björgunarmenn frá Lúxemborg og Frakklandi tóku þátt í aðgerðunum.

AP
AP
AP
Forsætisráðherra Frakklands Dominique de Villepin fyrir miðju og forsætisráðherra Lúxemborgar Jean-Claude Juncker, til vinstri.AP
Forsætisráðherra Frakklands Dominique de Villepin fyrir miðju og forsætisráðherra Lúxemborgar Jean-Claude Juncker, til vinstri.AP
ENEX
ENEX
Frá slysstaðENEX



Fleiri fréttir

Sjá meira


×