Lífið

Gerði íbúðina sína upp sjálfur

einbeittur
Ásgeir er einbeittur á svip þar sem hann mundar borvélina en hann er orðinn mjög lunkinn í heimilisviðgerðum.
einbeittur Ásgeir er einbeittur á svip þar sem hann mundar borvélina en hann er orðinn mjög lunkinn í heimilisviðgerðum.

Sjónvarpsmaðurinn, Ásgeir Kolbeinsson, notaði sumarfríið sitt vel í sumar en hann hefur verið að gera upp íbúð sem hann keypti sér fyrir fjórum mánuðum síðan. "Ég byrjaði á því að fá innanhússarkitektinn Halla hjá Glám og kím til að hanna með mér nýtt útlit á íbúðinni. Síðan henti ég öllu út úr henni þannig að hún varð bara eins og fokheld aftur," segir Ásgeir en þar sem hann er dæmigerður karlmaður þá nennti hann ekki að fara út um allt til að velja nýtt inn í íbúðina, heldur fékk bara heildartilboð frá Byko í allt sem hann þurfti.

"Ég fékk allt nýtt inn í eldhúsið og á baðið þar sem ég er með hitann í gólfinu og færði til rafmagnstengi og fleira." Ásgeir segir fátt skemmtilegra en að gera húsnæðið sitt nákvæmlega eins og hann vilji hafa það því útkoman geti varla verið annað en draumahúsnæðið. Sjálfur hefur hann unnið hörðum höndum í breytingunum en fengið gott fólk sér til aðstoðar. "Ég fékk dyggan stuðning frá fjölskyldunni sem er örugglega farin að íhuga að vera ekki lengur með mér í fjölskyldu, því ég er búinn að jaska þeim verulega út," segir Ásgeir hlæjandi og viðurkennir að hann hafi komið sjálfum sér verulega á óvart með því hvað hann væri í raun laginn í höndunum.

"Ég er búinn að leggja parket, pússa veggi og margt fleira og það var bara rosa gaman. Það kemur manni reyndar á óvart hvað þetta er miklu meiri vinna en maður telur í upphafi." Ásgeir er nýfluttur inn í nýju íbúðina sína þrátt fyrir að enn eigi eftir að ganga frá einhverju smotteríi. "Ég er rosalega ánægður með að hafa fengið innanhússarkitekt til að aðstoða mig við hönnunina og það var algjörlega þess virði. Þannig getur maður séð fyrir hvernig lokaútkoman verður og skipulagt hvert einasta rými fyrirfram," segir Ásgeir og er yfir sig ánægður með nýju íbúðina sína.

sig






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.